Á döfinni

Viðtal sem Þröstur Haraldsson, ritstjóri, tók við Paolo di Croce.
(smella á myndinni)


Viðtal við Paolo um Slow Food og Terra Madre í Silfur Egils 27. september (smella á myndina til að sjá þáttinn).









RIFF kvikmyndahátíð17.til 27.9
"Matur og kvikmyndir"
í Norræna Húsinu:
Terra Madre 24.9kl 16.00
Mid-summer Lunch 20.9
Food Inc.ath.dags.


Annað hvert ár flykkjast áhugasamir til Bra á Ítalíu til að smakka á ostum frá öllum heimshornum.


         --------------------------
 ERFÐABREYTT - NEI TAKK
Smella á myndina til að fá nánari upplýsingar.


         --------------------------
 SJÁ MYNDIR AF VIÐBURÐUM:

Hátíð Hafsins
Smella á myndina til að skoða myndir og frásögn.

              --------

Málþing 9. maí "Staðbundin matarmenning"

Smella á myndina til að sjá myndir og erindin.

Nýjustu fréttir

14. júlí 2010 | 21:00
| Dominique

Vatnajökull og Ölvisholt, bjór og ís
Vatnajökull – Bjór bruggaður úr ísjökum úr Jökulsárlóni.
Nýlega hófst sala á afar sérstæðum bjór á Suðausturlandi.
Bjórinn sem hlotið hefur nafnið Vatnajökull er einmitt bruggaður úr ísjökum úr Vatnajökli sem teknir eru úr Jökulsárlóni. Unnið er að nákvæmri aldursgreiningu á vatninu en gert er ráð fyrir að það sé á bilinu 600-1000 ára gamalt. Til að tryggja hreinleika vatnsins eru ísjakarnir fluttir í heilu lagi frá Jökulsárlóni í Ölvisholt brugghús sem sér um lögun á bjórnum. Til að undirstrika enn fremur sérstöðu bjórsins hefur bruggmeistari Ölvisholts kryddað bjórinn upp með blóðbergi sem vex í skjóli jökla á Suðausturlandi. Bjórinn hefur því sérstöðu á heimsvísu þar sem hann er bruggaður úr jökulís sem er árhundruða gamall. Um er að ræða sérstöðu-bjór sem bruggaður verður í takmörkuðu magni og eingöngu fáanlegur á vínveitingarstöðum innan klasasamstarfsins „Ríki Vatnajökuls“. Markmið klasans er  eðal
annars að stunda vöruþróun þar sem tengd er saman ferðaþjónusta og matvælaframleiðsla.
Bjórinn Vatnajökull er mjög gott dæmi um slíkt verkefni.
Kynning á bjórnum ásamt góðgæti frá Ríki Vatnajökuls verður í Norræna Húsinu (Dill Restaurant) á laugardaginn 17. júlí kl 17.00

 



Skráðu þig á póstlista Slow Food Reykjavík!
Netfang:
Nafn:
Tek við HTML pósti

 







© Slowfood Reykjavík 2009