Á döfinni

Paolo di Croce í SIlfur Egils

Viðtal við Paolo um Slow Food og Terra Madre í Silfur Egils 27. september (smella á myndina til að sjá þáttinn)

         --------------------------
 ERFÐABREYTT - NEI TAKK
Smella á myndina til að fá nánari upplýsingar.


         --------------------------
 SJÁ MYNDIR AF VIÐBURÐUM:

Hátíð Hafsins
Smella á myndina til að skoða myndir og frásögn.

              --------

Málþing 9. maí "Staðbundin matarmenning"

Smella á myndina til að sjá myndir og erindin.

Nýjustu fréttir

02. september 2010
| Dominique

Næst á dagskrá hjá okkur er ferð á Salone del Gusto þar sem verður drjúg þátttaka Íslendinga: workshop um geymsluaðferðir matvæla, bás á sýningunni, 10 manna hópur á Terra Madre, Teatro del Gusto þar sem Gunnar Karl á Dill mun sýna gestum hvernig maður matreiðir íslenskt hráefni... Þetta er einstakt tækifæ´ri og von bráðar fáum við tilboð um ferðina (pakki flug + hótel) frá Bændaferðum, Ekkert rökréttara að nota fagmennsku þeirra til að gefa okkur besta tilboðið. www.salonedelgusto.com og www.terramadre.org

15. júlí 2010
| Dominique

Neytandasamtökin hafa í  langan tíma reynt að fá svar frá Landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherranum um ástæðu þess að reglugerð 1829/2003 frá ESB (merkt "EEA relevant") hafa ekki verið innleidd í íslensku löggjöfina, með þeim afleiðingum að Ísland er eina landið í Evrópu (ESB + EES) sem hefur enga merkingu fyrir erfðabreytt matvæli þannig að neytandinn geti valið það sem hann kaupir. Síðast var sent bréf þ. 13. apríl og barst ekki svar fyrr en... 29. júní, án skýringa. En í þessu bréfi kemur fram að það sé ógerlegt að innleiða reglugerð þessa áður en búið sé að taka hana í EES-samningnum og þótt yfirvöld vildu gera það þá yrði það einhlíða ákvörðun sem yrði ófrmkvæmleg. Þetta allt er vafið inn í lagaflækju sem erfitt er lesa í gegnum sjálfsagt, en loks kemur athugasemd eða skýring um að "leyfi til markaðssetningar erfðabreyttra matvæla og fóðurs á innri markað ESB, svo eitt dæmi sé tekið, er gefið út af frmkvæmdastjórn ESB í samráði við atvæ´laöryggisstofnun Evrópu (EFSA) og séstaka ráðgjafarnefnd". Sem sagt það sem er selt á Íslandi og verður að vera merkt "erfðabreytt matvæli" þarf fyrst að fá samþykki EFSA... Á meðan eru íslenskir neytendur 3. flokks neytendur sem fá ekki að velja hvað þeir setja ofan í sig.
Vel að merkja hafa Norðmenn innleitt reglugerðina frá árinu 2005 og er hún strangari  þar í landi en annars staðar.
http://www.ns.is/ns/frettir/?cat_id=6413&ew_0_a_id=365121

14. júlí 2010
| Dominique

Vatnajökull – Bjór bruggaður úr ísjökum úr Jökulsárlóni.
Nýlega hófst sala á afar sérstæðum bjór á Suðausturlandi.
Bjórinn sem hlotið hefur nafnið Vatnajökull er einmitt bruggaður úr ísjökum úr Vatnajökli sem teknir eru úr Jökulsárlóni. Unnið er að nákvæmri aldursgreiningu á vatninu en gert er ráð fyrir að það sé á bilinu 600-1000 ára gamalt. Til að tryggja hreinleika vatnsins eru ísjakarnir fluttir í heilu lagi frá Jökulsárlóni í Ölvisholt brugghús sem sér um lögun á bjórnum. Til að undirstrika enn fremur sérstöðu bjórsins hefur bruggmeistari Ölvisholts kryddað bjórinn upp með blóðbergi sem vex í skjóli jökla á Suðausturlandi. Bjórinn hefur því sérstöðu á heimsvísu þar sem hann er bruggaður úr jökulís sem er árhundruða gamall. Um er að ræða sérstöðu-bjór sem bruggaður verður í takmörkuðu magni og eingöngu fáanlegur á vínveitingarstöðum innan klasasamstarfsins „Ríki Vatnajökuls“. Markmið klasans er  eðal
annars að stunda vöruþróun þar sem tengd er saman ferðaþjónusta og matvælaframleiðsla.
Bjórinn Vatnajökull er mjög gott dæmi um slíkt verkefni.
Kynning á bjórnum ásamt góðgæti frá Ríki Vatnajökuls verður í Norræna Húsinu (Dill Restaurant) á laugardaginn 17. júlí kl 17.00

17. júní 2010
| Dominique

Alþingi afgreiddi í gær 16. júní lagafrumvarp sem innleiðir tilskipun ESB 18/2001 um dreifingu og sleppingu erfðabreytta lífvera. Þetta er stjórnarfrumvarp sem var lagt fyrir Alþingi í fyrra en náði ekki afgreiðslu. Það er lítið um þetta að segja annað en að almenningur hefur meira rétt til að vera upplýstur (nú er það skylda að upplýsa um áætlanir um sleppingar eða dreifingu), og að skýr lýsing á sjálfbærni, líffræðilega fjölbreytni og varrúðarreglu eru í lagatextanum (vísindasamfélagið og Samtök Atvinnulífsins vildi sleppa því að nefna þessi atriði). Einnig eru siðferðislegir og félagslegir þættir tryggðir til jafns við vísindalegir þegar meta verður umsóknir. Innleiðsla tilskipunnar var samþykkt með 28 atkvæði með, 15 á móti (Sjálfstæðisflokkurinn...), 7 greiddu ekki atkvæði og 13 voru fjarverandi.

17. júní 2010
| Dominique

Salone del Gusto sýningin og Terra Madre ráðstefnan eru nú á dagskrá í október n.k. og áætlun er að skipuleggja hópferð þangað. Þegar eru ca. 10 Íslendingar boðnir á Terra Madre ráðstefnuna, íslenskur bás verður á Salone del Gusto, workshop um íslensk matvæli verður á laugardegi kl 16 og loks tekur Gunnar Karl Gíslason, yfirmatreiðlsumaður á Dill Restaurant, þátt í "Teatro del Gusto", einn 12 matreiðslumanna í heiminum, á föstudegi kl 16.
Allar upplýsingar á ensku á www.salonedelgusto.it og www.terramadre.org.
Þeir sem áhuga hafa á að fara til Torino í haust eru beðnir að hafa samband við dominique (hja) simnet.is

10. mars 2010
| Dominique

Aðalfundur félagsins Matur-saga-menning verður haldinn í ReykjavíkurAkademíunni, Hringbraut 121, fundarsal á 4. hæð, fimmtudaginn 25. mars kl 16.30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Tillaga að lagabreytingu, sjá meðfylgjandi breytingartillögu.
Kosning formanns, tveggja aðalmanna og eins varamanns í stjórn.
Í lok aðalfundar verður fræðslufundur á vegum félagsins, og hefst hann kl 17.
Þóra Valsdóttir, matvælafræðingur hjá Matís og Brynhildur Pálsdóttir, matarhönnuður við Listaháskóla Íslands kynna þar hugmyndir og tillögur að fiskimarkaði fyrir almenning. Fræðslufundurinn er öllum opinn og eru félagsmenn hvattir til að taka með sér gesti.


10. mars 2010
| Dominique

Í tengslum við Food & Fun og í samvinnu við Ný norræna matarverkefnið sem Mads Holm stýrir fyrir Norræna húsið var gerð tilraun með bragðmenntun fyrir börn. Þetta  fór þannig frama að heilum bekkjum úr ákveðnum grunnskólum var boðið að koma og fá umrædda bragðmenntun og það komu 3 bekkir. Það var lagt upp með að krakkarnir fengju sjálf að setja í orð nþað sem þau smökkuðu en þeim var gefið að smakka súrt, salt, beiskt og sætt. einnig var rætt um geymsluaðferðir á kjöti og fiski og krökkunum leyft að smakka ýsu sem var ný, þurrkurð og reykt til að finna hvað mismunandi aðferðir gerðu fyrir bragðið á sama hráefninu. Sama var svo gert með lambakjöti. Þetta var góð tilraun og bæði börnin og leiðbeinendur lærðu heilmikið af þessu fyrir nú utan hvað öllum þótti þetta skemmtilegt. Í ljósi þess hversu vel tókst til er alveg klárt að það verður haldið áfram með þetta og í næstu skipti verður unnið markvisst að því að koma "Slow food" hugmyndafræðinni inn í námskeiðið.

 



Skráðu þig á póstlista Slow Food Reykjavík!
Netfang:
Nafn:
Tek við HTML pósti

 







© Slowfood Reykjavík 2009