Slow Food hefur verið starfandi á Íslandi frá því árið 2001, þegar fyrsta íslenska deildin var stofnuð sem ber nafnið Slow Food Reykjavik Convivium. Ætla má að hátt í 200 manns hafi verið skráðir meðlimir á Íslandi frá upphafi. Í mars 2011 er stjórn deildarinnar nú skipuð eftirfarandi einstaklingum:
Dominique Plédel Jónsson (formaður), dominique (hjá) simnet.is
Eygló Björk Ólafsdóttir, eyglo.bjork (hjá) simnet.is
Eirný Sigurðardóttir eirny (hjá) yahoo.com
Ingi Steinar Ingason, ingi (hjá) kokka.is
Meðlimir eru skráðir sjálfkrafa í þá deild sem er næst þeirra búsetustað. Almennt hvetur Slow food til stofnunar fleiri deilda, t.d. eftir landssvæðum eða borgum. Nánari upplýsingar um það má finn á aðalheimasíðu Slow food
www.slowfood.com.
Innan Slow Food Reykjavík eru starfandi hópar utan um einstök mál og/eða verkefni, allt eftir tilefni á hverjum tíma. Vekja skal athygli á að eftirfarandi hópar eru starfandi:
- hópur um erfðabreyttar lífverur,
- hópur um stofnun og þróun bændamarkaða á Íslandi,
- vinnuhópur matreiðslumanna um bragðmenntun almennings
Allt starf á vegum Slow food á Íslandi er unnið í sjálfboðavinnu.
Slow Food á Facebook:
Hópur: skráðu þig
hér til að vera með í umræðunni
Síða: smelltu "like"
á þessari síðu til að fá upplýsingar beint á þína Facebook síðu